Komdu að dansa!

Fullorðinsnámskeið

Samkvæmisdansar fyrir byrjendur og lengra komna

Fullorðinsnámskeið

Námskeið í samkvæmisdönsum fyrir fullorðna eru kennd einu sinni í viku í formi hóptíma. Á námskeiðunum eru kenndir hinir svokölluðu standard dansar sem eru t.d. walts, tangó, vínarvals, foxtrot og suður-amerískir dansar sem eru t.d. jive, cha-cha-cha, samba og rúmba. Námskeiðin eru einungis ætluð pörum.

Á námskeiðunum hjá okkur er lögð áhersla á að allir skemmti sér vel og að þú lærir eitthvað sem nýtist þér.

Fyrir byrjendur og lengra komna
Fyrir byrjendur erum við með átta vikna námskeið sem hefjast um miðjan september eða miðjan janúar. Hvert námskeið er átta skipti. Framhaldsnámskeið fyrir fullorðna eru hins vegar 14 vikur sem samanstanda af 13 kennslutímum og í síðasta tímanum er svo haldið ball. 

Ef þið hafið dansað áður þá er dansskólinn með marga framhaldshópa þar sem auðvelt er að finna hóp við hæfi.

Námskeiðstímar vor 2024

Byrjendanámskeið

Byrjendanámskeið hefst þriðjudaginn 27. febrúar og stendur til 2. apríl 2024. Kennsla fer fram á þriðjudagskvöldum, einu sinni í viku frá kl. 21:00 – 22.00. Námskeiðið kostar kr. 38.900 fyrir parið. Skráning fer fram hér á síðunni í gegnum skráningarkerfið. Ef ekki næg þátttaka næst þá gæti þurft að fella námskeiðið niður.

Framhaldsnámskeið

Við höfum marga framhaldshópa í gangi hverju sinni og finnum hóp sem hentar miðað við hvar hver og einn er staddur. Best er að hafa samband við okkur fyrir skráningu í framhaldshóp fyrir fullorðna, annað hvort með því að fylla inn skráningarformið hér til hliðar eða á dansari@dansari.is.

Verð og upplýsingar um iðkendastyrki

Verð á námskeiðum ásamt upplýsingum um iðkendastyrki fyrir börn sem hægt er að sækja um hjá öllum sveitarfélögum má finna hér.  Við minnum á að starfsmanna- og stéttarfélög veita mörg hver styrki vegna dansnámskeiða.

Fyrirkomulag og skráning

Til að skrá par á byrjendanámskeið þarf að senda skráningu í gegnum formið. Þau sem hafa verið hjá okkur áður eru beðin um að hafa samband.

Skráningarform