Komdu að dansa!

Einstaklingar og brúðarpör

Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi

Einstaklingar og brúðarpör

Dans fyrir einstaklinga

Fyrir einstaklinga án dansfélaga bjóðum við upp á einkatíma. Kennari býr til námsáætlun með hverjum og einum. Tímarnir fara fram utan hefðbundinnar stundarskrár.

Brúðarpör

Fyrir þá sem eru að huga að giftingu þá býður dansskólinn uppá einkatíma fyrir brúðhjón. Þar gefst tilvonandi brúðhjónum kostur á að læra heppilegan brúðarvalts eða aðra almenna samkvæmisdansa fyrir stóra daginn.

Í einkatíma er aðstoð við lagaval og kennslu í að dansa það sem brúðhjónin kjósa hverju sinni. Mjög vinsælt er að brúðhjónin komi sjálf með sín eign lög og vill læra að dansa við það. Þetta eru ýmis lög, oftast eru þau róleg og rómantísk, eða lög sem brúðhjónin eiga sér einhverjar sérstakar minningar saman.

Tilvonandi brúðhjónum er bent á að hafa samband í síma 564-1111 eða senda tölvupóst á dansari@dansari.is.