• Reykjavíkurborg
  • Garðabær
  • Kópavogsbær

Reykjavíkurborg

Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar er með samning við Reykjavíkurborg um niðurgreiðslu á æfingagjöldum fyrir börn 6-18 ára.

Allar upplýsingar er að finna á heimasíðu ÍTR.

Við viljum benda foreldrum/forráðamönnum að nýta sér niðurgreiðsluna fyrir danskennslu í vetur.

Garðabær

Hvatapeningar ársins 2018 eru 50.000 krónur á barn. Öll börn á aldrinum 5-18 ára fá nú hvatapeninga, þ.e. börn fædd á árunum 2000-2013.

Athugið að hvatapeningar fyrnast alltaf um áramót. Það þýðir að ráðstafa verður hvatapeningum fyrir áramót og skila inn kvittun til endurgreiðslu þegar það á við. Hvatapeningar ársins 2018 eru aðeins greiddir út á árinu 2018.

Hvatapeninga 2018 er hægt að nýta vegna reikninga sem eru gefnir út á árinu 2017 og 2018.

Hvatapeningana er hægt að nýta til að lækka kostnað við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf sem nær yfir 10 vikur að lágmarki.

Ungmenni í þremur elstu árgöngunum, þ.e. þau sem eru fædd 2000, 2001 og 2002 geta fengið hvatapeninga greidda vegna kaupa á korti í líkamsræktarstöð.

Hvatapeningar eru hugsaðir til að hvetja börn og unglinga á aldrinum 5 til 18 ára til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem leitt er af þar til hæfum leiðbeinendum.

Ástæða þess að sveitarfélög um land allt hafa tekið upp slíkar hvatagreiðslur eru niðurstöður langtíma rannsókna á líðan íslenskra barna og ungmenna. Rannsóknirnar sýna að þátttaka í slíku starfi, sem nær yfir að minnsta kosti 10 vikur, hefur marktæk áhrif á bætta vellíðan og minni „vandamál“. Íþróttastarf og skátastarf vegur þar langþyngst á metum.

Úthlutun peninganna fer fram í gegnum skráningarkerfið Nóra vegna starfs hjá þeim félögum sem tengd eru við skráningarkerfi Nóra. Bæði er hægt að nýta hvatapeningana beint hjá félögum innan Garðabæjar sem og í öðrum sveitarfélögum. Þegar hvatapeningar eru nýttir í gegnum skráningarkerfi Nóra þarf að haka í kassann „Nota hvatapeninga Garðabæjar“ og þá lækkar upphæð æfingagjalda um þá upphæð sem nemur inneign hvatapeninga fyrir barnið. Ef félög eru ekki tengd við skráningarkerfið Nóra þarf að koma reikningi til þjónustuvers Garðabæjar með upplýsingum um upphæð hvatapeninga sem á að nýta sem og upplýsingum um hvert á að endurgreiða.

 

Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða í netfangi gardabaer@gardabaer.is

Kópavogsbær

Kópavogsbær veitir foreldrum/forráðamönnum barna á aldrinum 5-18 ára með lögheimili í Kópavogi, frístundastyrk vegna þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Frá og með 1. janúar 2018 er styrkurinn 50.000 krónur á barn á ári. Heimilt er að ráðstafa frístundastyrknum hvenær sem er á árinu óháð fjölda greina/námskeiða.

Kópavogsbær hefur samþykkt að opna á notkun Frístundastyrks Kópavogs fyrir líkamsræktarkort ungmenna á aldrinum 16-18 ára Heimilt er að veita frístundastyrk til ungmenna, 16-18 ára miðað við fæðingaár, til kaupa á 3ja til 12 mánaða kortum að líkamsræktarstöðvum sem uppfylla skilyrði um fræðslu til iðkenda og fagmennsku í sinni starfssemi.

Vinsamlegast athugið að öll ráðstöfun frístundastyrkja er núna rafræn.